Pókerfés. Óskast keypt. Má kosta mig. Lífið.

27.08.2009 15:31:45 / hildurk

Mismæli ársins, keppandi #3

Egill nýkominn úr felti útí rassgati og ennþá í útivistargallanum.

Hildur: Keyrðuð þið í gegnum Drenggatið á leiðinni heim?
Egill: Meinarðu Strákagöng?
Hildur: Já.


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.08.2009 12:43:26 / hildurk

Mismæli ársins, keppandi #2

Hildur: Við ætlum að fara í bíó á Harry Potter.
Einar: Harry Potter og Gervidrottninguna?
Hildur: U, nei Harry Potter og Blendingsprinsinn.
Einar: Nújá.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2009 14:50:56 / hildurk

Mismæli ársins, keppandi #1

Hildur skoðar Facebookið hjá Agli og bendir á mynd af stelpu.

Hildur: Hver er þetta?
Egill: Hún er gift kærastanum mínum.
Hildur: Ha?


» 4 hafa sagt sína skoðun

22.02.2009 21:27:03 / hildurk

upplífgandi

Já ég var komin með ógeð af lærdómi og ákvað að gefa bara skít í prófin og fara að lesa eitthvað upplífgandi. Greip bók úr hillunni sem ég keypti mér fyrir inneignina eftir jólin og hef verið að bíða eftir að komast í.

Það vildi þó ekki betur til en svo að bókin fjallar um borgarstyrjöldina í Sri Lanka og rannsóknarkonu sem vinnur við að grafa upp limlest og brennd lík og bera kennsl á þau. Upplífgandi. Mjöög upplífgandi.





» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 22:09:02 / hildurk

já hjartað í mér slær enn...

...og afhverju blogga ég?

Afþví það eru að koma próf og þá á bloggtíðnin það til að rjúka uppúr öllu valdi.
Erað fara í tvö á mánudaginn 23. og ég nenni því barasta svo alls ekki að það er ekki fyndið.

En af neðanskrifuðum kommentum þá er greinilegt hvorum megin í kirkjunni álitsgjafar ætla að sitja, ef ég og Egill giftum okkur einhverntímann þ.e.a.s.

Sama hvað þið segið langar mig ennþá meira til Spánar eða Ítalíu.

En jæja. Bloggþörfin búin í bili. Maður þarf náttúrulega að trappa sig upp í svona lagað. Þýðir ekki að færast of mikið í fang osfrv osfrv.




» 0 hafa sagt sína skoðun

15.01.2009 12:06:30 / hildurk

nýtt ár og jaddejaddí

Jáh ég hef verið gaasalega aktív undanfarið einsog hér hefur sést. Ég fór nánast ekki úr náttbuxunum allan desember og langt fram í janúar, nema rétt til að bregða mér í skriflegt próf þann 19. Svo var ég, einsog aðrir á heimilinu, lasin um jólin. Held við höfum komið metbirgðum af snýtipappír, hunangi og tei í lóg.

Er svona temmó sátt við einkunnirnar. Tvær níur og eina áttu. Þó vitið þið væntanlega hvað mér finnst um áttur þannig að ég ætla ekkert að vera að tíunda það neitt frekar hérna því það hefur valdið fjargviðri forðum. (afsakið málfarið, er að lesa drótt- og eddukvæði þessa dagana).

Og annars bara... umm... já. Þetta eru klárlega tíðindaminnstu mánuðir í lífi mínu.
Ég veit að þetta er fyrsta færslan á nýju ári og allt það, en ég ætla ekki að koma með uppgjör við árið 2008. Maður er orðinn svo gamall að árin eru farin að renna saman. Man ekkert hvað var í fyrra, hvað í hittífyrra osfrv. Stóð mig að því nýverið að tala um "þegar ég var í Taívan í fyrra" en fattaði svo að það er miklu lengra síðan ég var þar. Eiginlega alltof langt bara.
En það er svosem ekki útlit fyrir að maður fari aftur þangað í bráð. Og svosem ekki útlit fyrir að maður fari neitt í bráð ef útí það er farið.

Við Egill erum samt draumóramanneskjur og erum farin að tala um hvurt við eigum að fara í framhaldsnám. Hann er spenntur fyrir Þýskalandi og Hollandi á meðan ég lobbýa fyrir Spáni og Ítalíu.
Hvað finnst ykkur?

(GO TEAM HILDUR!)




» 7 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 17:35:59 / hildurk

...........

Jæja þá er kennslu lokið þessa önnina.
Skilaði ógeðis heimaprófinu á föstudaginn. Sprautaði vellyktandi á aðra hverja blaðsíðu svo að í undirmeðvitundinni færi kennaranum ósjálfrátt að líka vel við prófið mitt. Nei ok ég gerði það ekki en finnst það góð hugmynd fyrir næsta heimapróf.

Á svo bara eftir að skila einu smotterísverkefni fyrir 10. des og svo ógeðis Strauma&Stefnu próf þann 19. des. Svo bara skötuboð og síðan jól.
Ætla reyndar að gera fullt fullt í millitíðinni einsog að fara á Emilíönutónleikana með kærustunni minni henni Hebu. Svo ætla ég að baka smákökur og gera konfekt. Já það tilkynnist hérmeð að ég er blankur og hef ekki efni á að sjoppa jólagjafir. Þið fáið semsagt heimagert konfekt og hananú. Svo ætla ég líka að læra svona einsog pínulítið fyrir þetta próf. Djöfull þoli ég ekki hvað öll námskeið eru fáránlega yfirgripsmikil. Bókmenntafræðin er ekkert að víla fyrir sér að skella nokkurra árþúsundasögu svona saman í einn kúrs.

Já og svo einsog þið vitið kannski sum ykkar þá át hann Fjalar minn skopparabolta (þetta er svo gáfað) og var næstum dáinn og þurfti að fara í uppskurð. Svo fengum við hann heim og þá reif hann einn sauminn upp þannig að núna er hann kominn með skerm. Þeir eru flottir saman bræðurnir, Freki fatlaður og Fjalar með rakaðan maga og framfót og með skerm. Greyið vissi ekki hvert hann ætlaði þegar hann fékk skerminn fyrst og var alltaf að reyna að bakka útúr honum þannig að hann moonwalkaði um alla íbúð. Ég og Rún vorum næstum búnar að pissa í okkur af hlátri. Svo má hann ekki borða neitt nema fljótandi fæði þannig að í gær lagaði ég mjög girnilegar túnfisk- og ýsubitasúpur handa honum.

Svo er pabbi kominn heim frá Afríku og er sólbrúnn. Það finnst mér vera svindl svona þegar desember er að skella á.




» 4 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 21:57:52 / hildurk

svartnætti, síðrökkur og Hitchcock

Jæja. Haldiði ekki bara að perra optikerinn sé sestur í helgan stein. Í hans stað var kominn mun yngri maður sem hvíslaði allan tímann, sem mætti jafnvel túlka sem perralegheit ef maður væri þannig upp lagður.

En ég semsagt fékk ný gler í gleraugun mín og þurfti að borga fyrir það andvirði eins nýra á svartamarkaðinum (áður en gengið féll) og veröldin fékk alltíeinu útlínur aftur.

Annars er ég bara að vinna í heimaprófi dauðans. Eða ég er kannski meira í því að vera andvaka af áhyggjum yfir að vera ekki búin að vinna í því. Þetta er í kúrsi í kvikmyndafræði, og fyrst í haust þá fannst mér þetta gasalega notalegt að mæta bara í tíma uppí Háskólabíó og horfa á bíómyndir en svo sprakk hamingjublaðran og það kom í ljós að maður þarf víst aksjúllí að vinna eitthvað í þessum kúrsi. Er þessvegna (eða á að vera) að skrifa um glæpakvendi í síðrökkri, Hitchcock og Big Sleep. Mega stuð.

Jáh. Annars bara... alltof dimmt úti. Mér finnst ég vera alveg svona 15 kílóum þyngri í svartnættinu heldur en á sumrin.




» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 11:14:43 / hildurk

Afríka, optikerar og vitlausir kisar

Já þó ég sofi alltaf til rúmlega níu á morgnanna þá er samt farið að vera dimmt úti þegar ég vakna. Það er bömmer því þá verður ennþá erfiðara að fara á fætur, sérstaklega ef maður þarf ekki að mæta í tíma eða neitt.
Því mér til mikillar furðu þá er ég bara ekkert duglegri að læra núna þegar ég loksins er ekki að vinna með skólanum. Þvert á móti er ég bara ennþá latari. Þetta er greinilega snúið. Nenni heldur ekki að fara að vinna því alltíeinu þá hefur maður fullt af tíma til að hangsa, og það getur verið notalegt. Held líka að það geti verið erfitt að finna sér einhverja almennilega vinnu með skóla núna. Er meira að segja pínu farin að kvíða því að fá enga sumarvinnu, en það kemur alltsaman í ljós bara.

Annars er pabbi ennþá í Afríku. Hann er búinn að vera í Kenýa undanfarið og það er búið að vera mikið fjör og húllumhæ eftir að Obama vann.

Við erum að sjálfsögðu að passa kisana á meðan. Þeir eru svo miklir vitleysingar að þeir fara ekki út í björtu. Hafið þið vitað annað eins? Þeir vilja bara fara út eftir myrkur. Ég og Rún bjuggum til Sushi í gær og gáfum þeim afskorninga en þeir kunnu ekkert að borða hráan fiskinn og dreifðu honum bara útum allt gólf.

Svo er Egill bara alltaf uppá þessari helvítis Hvanneyri. Ég er alveg að verða komin með nóg af þessu og er alvarlega farin að íhuga að fá mér svona vara-kærasta sem er með fasta búsetu í Reykjavík sem ég get haft afnot af frá mánudögum til fimmtudags. Einhverjir sjálfboðaliðar? Má líka vera kvenkyns.

Svo er ég að fara til þýska optikersins míns á eftir. Hann er held ég perrakall og káfar alltaf á mér þegar ég fer til hans en einhvernveginn kann ég ekki við að skipta. Ég er nefnilega búin að sjá illa svolítið lengi en hef barasta ekki tímt að fara því allt sem viðkemur gleraugum er svo ógeðslega fáránlega dýrt, en núna er bara ekki annað til ráða. Ég er eiginlega alveg hætt að sjá og því vil ég jafnframt nota tækifærið núna til að biðja alla þá sem hafa séð mig (en ég ekki þá) afsökunar á því að hafa ekki heilsað.




» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 17:40:30 / hildurk

Einsog talað útúr mínu hjarta

"Mælskubrögð eru ljóslega eitthvað sem nota má af háttvísi ef þeim er beitt við rétt tækifæri. Á sama hátt og konan ("líkt og hið fagra kyn") eru þau afbragð ef þeim er haldið innan sinna marka. Utan sinna marka, þar sem menn ræða sín alvörumál ("þegar vér tölum um hlutina eins og þeir eru"), eru þau hneykslanleg - á sama hátt og ef raunveruleg kona birtist í heldrimannaklúbbnum þar sem hún væri í mesta lagi umborin sem mynd, helst nakin (eins og ímynd sannleikans), römmuð inn og hengd upp á vegg."

Úr Þekkingarfræði Myndhvarfa e. Paul De Man

Og hananú!


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 11:08:59 / hildurk

smyndablogg

Ég er að skrifa svo mikið fyrir skólann að ég hef ekkert eftir að skrifa hér....

Var fyrir norðan um helgina. Kom svo suður í langri bílalest af ættingjum.
Er búin að vera temmilega dugleg við að skrópa í vikunni. Fór á Vitann í gær með Kötu, Rún og Sóleyju til að fá okkur tvo fyrir svefninn og urðum fyrir áreitni.

Er svo að fara í mat til pabba á eftir að kveðja hann því hann er að fara til Afríku í fimm vikur.

Og að lokum:






» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 14:59:21 / hildurk

Tannlæknir, amma og jarðarför

Hmm einhverra hluta vegna þá dettur mér bara í hug að skrifa hérna þegar ég á að vera að skrifa verkefni. Duló.

Fór til tannlæknis í gær og er þessvegna tæpum níu þúsund krónum fátækari fyrir vikið, þrátt fyrir að vera ekki með neina skemmd og hann gerði ekkert nema bara skoða og hrósa mér fyrir hvað ég væri með fallegar tennur. Jú og svo skamma mig líka fyrir að nota ekki alltaf tannþráð. Ég sagði honum að það væri mömmu að kenna því hún væri ekki búin að kaupa tannþráð síðan hann kláraðist síðast en hann sagði að það væri engin afsökun. Hann þekkir líka mömmu mína en var samt búin að gleyma því að ég væri dóttir hennar þannig að í gær skrifaði hann á spjaldið mitt (sem virðist vera tannlæknaútgáfan af sjúkraskrá) M: Guðrún Sigurjónsdóttir. Hann hafði samt ekki mikinn áhuga á að feðra mig.
En ég sé samt ekki neitt eftir þessum tæpa níuþúsundkalli því tannlæknirinn minn segir svo margar skemmtilegar sögur að heimsóknin var hverrar krónu virði. Það er líka aðdáunarvert hversu miklu magni af upplýsingum honum tekst að koma að á þessum nokkru mínútum. Hann sagði mér sögur af sveitungum í Kelduhverfi þegar hann var tannlæknir af Húsavík, greindi Njálu niður í öreindir og sagði mér heimasmíðaða kenningu sína um íslenskar glæpasögur. Ítrekaði einnig það sem hann sagði mér í síðustu heimsókn, sem var það að óléttar konur ættu ekki að brosa framan í tannlækna. (Tek samt fram að ég er ekki ólétt) Svo spurði hann mig líka spjörunum úr en virtist blessunarlega ekki ætlast til þess að ég svaraði honum þarsem ég var með munninn fullan af höndunum á honum.

Svo átti Rún ammæli á mánudag og ég er ekki enn búin að kaupa gjöf. Því hún er svo ósvífin að kaupa sér einmitt bókina sem ég ætlaði að gefa henni tveimur dögum fyrir ammælið. Ég hélt að allir vissu að maður á ekki að kaupa sér neitt þegar maður fer að eiga ammæli. Uppeldið greinilega eitthvað að klikka. (Sko ég kenni mömmu alltaf um allt. Það er öruggast)

Erum svo að fara norður um helgina. Ekki er tilefnið samt skemmtilegt. Amma mín dó aðfaranótt laugardags síðustu helgi og útförin verður frá Akureyrarkirkju á mánudag.

Ég hlakka samt til að hitta ömmu og afa á Húsavík. Ætla að láta ömmu Dísu spá fyrir mér. Vissuð þið að hún spáir alltaf rétt? Hún sá fyrir Taívan ferðina áður en ég einusinni sótti um styrkinn. Svo kom hún uppum óléttu um síðustu jól.




» 0 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 19:28:11 / hildurk

maður á að drekka rauðvín í *****unni

Já.

Þarsem þunglyndið er að þjaka þjóðina þessa dagana ákvað ég að gera mér dagamun í gær og fór með Svövu vinkonu minni að fá mér rauðvínsglas (sem hefur notabene ekki hækkað í verði). Við duttum inní ljóðaupplestur á verkum Sigurðar Pálssonar sem ég hef dáð úr fjarlægð síðan ég las minnisbókina hans um jólin. Eftirá hélt skáldið sjálft tölu og talaði um að þegar peningarnir hyrfu þá uppgvötaði maðurinn hvað væri mikilvægt. Og það væru bókmenntirnar og ljóðið. En hvað það er huggulegt að vera í bókmenntafræði ef það er satt. Aumingjans þið hin sem eruð í hagfræði.

Var annars að horfa á mjög (relatívt) skemmtilega mynd fyrir skólann. Hún heitir Der Golem og er þýsk, expressíónísk og þögul og gerð árið 1920. Mér finnst í rauninni ótrúlegt að það hafi ekki verið gerðar fleiri hryllingsmyndir um gólema. Ég meina kabbalískt gyðingaskrímsli er náttúrulega tiilvalið í hrollvekju. Æ þeir eru nú reyndar allir gyðingar þessir sem eiga myndverin í Hollywood þannig að það er kannski ekkert skrýtið að svoleiðis handrit myndu falla í grýttan jarðveg....

En eníveis... það er bara verkefnavika í næstu viku og önnin þarmeð hálfnuð. Kennararnir mínir hinsvegar hunsa fríið bara og halda áfram að kenna einsog ekkert hafi í skorist. Og það er í fínu lagi fyrir mér. Ekki einsog maður sé að fara til útlanda eða eitthvað. Allt útlit fyrir að maður noti bara ekkert þessa afgangs hoppmiða sem maður á eftir sumarstritið.

Svo kemur Egill á morgun og þá verður gaman.




» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 20:38:22 / hildurk

vá ég trúi varla að ég sé að nota þetta sem fyrirsögn... en kreppa it is!

Kennarinn minn sagði í tíma áðan: "Krakkar eruð þið ekki fegin núna að vera bara í bókmenntafræði en ekki hagfræði eða viðskiptafræði?"

Þá fóru allir að hlæja og svo ýtti hann á play. (Því ég fæ að horfa á Hollywood bíómyndir þegar ég er í skólanum).

Og jú. Ég er fegin. Fjúff. Svo er ég líka fegin að vera ekki að fara að útskrifast næstum því strax = þarf ekki að fara að vinna fyrren eftir svona 8 ár.

Ég er líka fáránlega fegin yfir því að búa bara ennþá hjá mömmu. Svo hef ég líka aldrei átt jafnmargar krónur í banka einsog núna. Prentaði samt yfirlitið mitt útúr einkabankanum áðan. Svona bara til vonar og vara svo ég geti dokúmenterað þetta fyrir ríkinu þegar það fer að tryggja innlánin mín þegar Landsbankinn verður tekinn yfir í fyrramálið.




» 2 hafa sagt sína skoðun

01.10.2008 17:58:18 / hildurk

Uppvask og matarboðið hennar mömmu

Váá hvað ég er komin með mikið ógeð á að hlusta á og lesa um þetta helvítis krepputal. Maður verður beinlínis deprimeraður á að sitja undir þessu svona mánuðum saman.
Er ekki hægt að tala um eitthvað annað? Meira að segja heimili mitt er undirlagt.

Annars já. Þá hafa síðustu dagar verið afbragsgóðir, svona veðurlega séð. Sól og haustlaufin að fjúka útum allt. Snjór efst í esjunni og svona.
En svo var ógeðslegt rok í dag og bara tveggja stiga hiti. Ég meirað segja setti á mig húfu.
Er í miklu basli með að lesa grein eina sem fjallar um hugmyndafræði á afar abstrakt máta. Þjáist af miklum einbeitingarskorti alltaf þegar ég tek hana upp. Og viljiði pæla... ég fór frekar að vaska upp en að lesa hana. Þá er það sko orðið svart.

Svo er mamma með matarboð í kvöld og hendir mér út þessvegna. Ætla að fara að fá mér að borða með Svövu bara í staðinn. Hef samt pínu áhyggjur af matarboðinu hennar mömmu, því klukkan er að verða sex og mamma er ekki enn komin heim og hvað þá farin að elda.



» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 27
Könnun
Hver er sigurvegarinn í keppninni um mismæli ársins?


Heimsóknir
Í dag:  14  Alls: 192141
hinar myndirnar